Kaflar
1940: Þjóðverjar hernema fleiri lönd

Það tók Þjóðverja einungis fjórar vikur að vinna fullnaðarsigur á Pólverjum sem þeir deildu með Sovétríkjunum. Þá sneri Hitler sér í vesturátt.
Í apríl 1940 hernámu Þjóðverjar bæði Danmörku og Noreg. Í maí það sama ár hernámu þeir Belgíu, Holland, Lúxemborg og stóran hluta Frakklands.
Og ekki létu þeir staðar numið þar því í apríl 1941 réðust þeir inn í Júgóslavíu og Grikkland. Alls staðar fylgdi þeim ógn og skelfing.
En Þjóðverjar voru ekki hættir, því 22. júní réðust þeir inn í Sovétríkin.
Sumarið 1940 hófu Þjóðverjar harðar loftárásir á Bretland. Í fyrstu einbeittu þeir sér að flugvöllum og radarstöðvum en 7. september hófu þeir loftárásir á London og fleiri borgir. Bretar vörðust með sínum flugvélum og náðu að skjóta niður margar þýskar flugvélar. Þessar flugárásir stóðu nánast linnulaust en mjög dró úr þeim eftir að Þjóðverjar réðust inn í Sovétríkin.