Kaflar

1967: Sex daga stríðið

Þegar líða tók á sjöunda áratuginn jókst spennan á milli Ísraelsríkis og nágrannaríkja. Gamal Abdel Nasser forseti Egyptalands reri öllum árum að því að sameina öll arabaríkin í að styðja Palestínumenn með hernaði gegn Ísrael. Í maí 1967 var Nasser búinn að koma 100.000 hermönnum og 1000 skriðdrekum að landamærum Ísraels. Jórdanir undir stjórn Husseins konungs gerðu það sama vestanmegin og þá gengu Írak, Sádí-Arabía, Súdan, Túnis, Marokkó, Alsír og Sýrland í lið með Egyptalandi og Jórdönum. Stríð virtist óumflýjanlegt.
Eftir árangurslausar viðræður ákváðu Ísraelar að bregðast við hættunni, og 5. júní hófu þeir flugárásir á flugvelli Egypta og tókst að eyðileggja flugflota þeirra að stærstum hluta. Sama dag réðust þeir gegn herjum Egypta á landi með þeim afleiðingum að Egyptar urðu að hörfa. Þá réðust þeir gegn herjum Jórdana, Sýrlendinga og Palestínumanna og höfðu þar einnig sigur.
Þann 11. júní eða sex dögum frá upphafi stríðs hafði Ísrael unnið fullnaðarsigur og í leiðinni tvöfaldað sitt yfirráðasvæði frá því sem var fyrir stríðið.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hver var Gamal Abdul Nasser?
2. Hver var yfir Jórdaníu á þessum tíma?
3. Hvaða þjóðir stóðu með Egyptum og Jórdönum gegn Ísrael árið 1967?
4. Hverjir höfðu sigur í sex daga stríðinu?
5. Nefndu dæmi um afleiðingar sex daga stríðsins?