Kaflar

1966: Ýmislegt

Indira Gandhi varð forsætisráðherra Indlands 19. janúar árið 1966. Var hún önnur konan til að verða forsætisráðherra í sínu landi í veröldinni. Sú fyrsta var Sirimavo Bandaranaike í Ceylon sem nú er Sri Lanka; hún var kjörin í júlí árið 1960.
Tuttugasta og annan mars varð jarðskjálfti í borginni Xingtai í Kína að stærðinni 6,8 á  Richter-kvarðanum. Átta þúsund manns létust af völdum hans og þrjátíu og átta þúsundir slösuðust.
Kvikmyndin The Sound of Music hlaut óskarinn fyrir að vera besta kvikmyndin þetta árið.
Englendingar urðu heimsmeistarar í knattspyrnu með sigri á Þjóðverjum í úrslitaleiknum með fjórum mörkum gegn tveimur.
Í mars hneykslaði Bítillinn John Lennon heiminn með því að segja í viðtali að Bítlarnir væru vinsælli en Jesús. Í kjölfarið voru víða haldnar brennur þar sem hljómplötur og annað tengt Bítlunum var brennt. Seinna baðst Lennon afsökunar á þessum ummælum.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hver var Indira Gandhi?
2. Hver var fyrsta konan til að verða forsætisráðherra lands síns og hvenær var það?
3. Hvað var jarðskjálftinn sem banaði átta þúsund manns í Xingtai stór?
4. Hvaða mynd var valin besta kvikmyndin á óskarnum 1966?
5. Hverja sigruðu Englendingar í úrslitaleik heimsmeistarakeppninnar 1966?
6. Hvað sagði John Lennon sem hneykslaði marga?