Kaflar

1943: Baráttan um Miðjarðarhafið

Bardagar síðari heimsstyrjaldar teygðu sig til Afríku. Eftir að Þjóðverjar höfðu náð völdum nánast í allri Evrópu þurftu bandamenn að tryggja sér fótfestu til að geta hafið sókn frá Miðjarðarhafi. Ítalir sem réðu Líbíu réðust gegn Bretum með her inn í Egyptaland í september 1940 en voru hraktir á flótta. Þá sendu Þjóðverjar þýskan her undir stjórn hershöfðingjans Rommels árið 1941 og taflið snerist við.
Þá sendu Bandaríkjamenn liðsauka en það var jafnframt í fyrsta sinn sem bandarískur her barðist gegn þýskum og ítölskum herjum. Eftir harða bardaga gáfust herir Öxulveldanna í Afríku loks upp fyrir Bandaríkjamönnum og Bretum 13. maí 1943.
Bretar höfðu bækistöð á eyjunni Möltu og reyndu Þjóðverjar með öllum ráðum að ná eyjunni af Bretum en tókst ekki.
Með því að ná yfirráðum í Norður-Afríku var kominn stökkpallur fyrir bandamenn að ráðast inn í Evrópu sunnan frá og í júlí 1943 náðu bandamenn Sikiley.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvaðan vildu Bandamenn geta sótt að Þjóðverjum?
2. Hverjir réðust á Bandamenn í Egyptalandi frá Líbíu?
3. Hvað þýski herforingi stöðvaði framrás Breta í Afríku árið 1941?
4. Hvað gerðist 13. maí 1943 í Afríku?
5. Hvar höfðu Bretar bækistöð á Miðjarðarhafi?
6. Hvaða stað náðu Bandamenn í júlí 1943?