Kaflar
1944: D-dagurinn – Innrásin á Normandí

Bandamenn höfðu lengi hugsað um að ráðast til atlögu yfir Ermarsundið. En slíka árás varð að undirbúa vel.
Það var svo 6. júní 1944 að bandamenn undir stjórn bandaríska hershöfðingjans Eisenhowers og breska hershöfðingjans Montgomery sem þeir létu til skarar skríða.
Það þurfti 7000 skip til að flytja heri Bandamanna yfir sundið. Innrásin var gerð á sex stöðum og mættu herirnir mikilli andstöðu. Mannfallið var gríðarlegt.
Við lok dagsins höfðu 150.000 hermenn Bandmanna náð landi og nú héldu herir Bandmanna úr vestri í átt til Þýskalands. Úr austri þurftu Þjóðverjar að glíma við Sovétmenn. Það var nú öllum ljóst að hverju stefndi.
Kommúnistar á Ítalíu náðu Mussolini og tóku hann af lífi 28. apríl 1945 og þar með var allri mótstöðu lokið úr þeirri átt.
Hitler tók eigið líf 30. apríl 1945 og 4. maí gáfust Þjóðverjar endanlega upp. Stríðinu í Evrópu var lokið.