Kaflar
30. Bolli snýr heim til Íslands. Kristnitakan

Nú vildi konungur að Kjartan færi til Íslands og boðaði trú. Það varð þó úr að hann yrði áfram í Noregi, en konungur sendi prestinn Þangbrand í trúboðsferð til Íslands. Og árið eftir sendi hann tvo göfuga Íslendinga þangað, þá Gissur hvíta og Hjalta Skeggjason, í sömu erindagjörðum. En hann hélt eftir í Noregi fjórum íslenskum höfðingjasonum sem gíslum og var Kjartan einn þeirra. Bolli ákvað að fara til Íslands enda var hann ekki einn af þessum fjórum! Hann kvaddi fóstbróður sinn og gaf í skyn að hann, þ.e. Kjartan, vildi helst sitja á tali við Ingibjörgu konungssystur. Kjartan vildi ekki að hann talaði þannig en bað hann fyrir kveðju til frænda sinna og vina á Íslandi.
Skemmst er frá því að segja að þeir Gissur og Hjalti boðuðu Íslendingum kristni, og tóku þá allir menn trú á Íslandi.
Stuttu eftir að Bolli kom heim í Hjarðarholt reið hann til Lauga og hitti Guðrúnu Ósvífursdóttur sem spurði hann frétta um ferðir hans en því næst um Kjartan. Bolli sagði henni að sér þætti ólíklegt að Kjartan kæmi heim næstu árin; og þegar Guðrún vildi vita ástæðuna sagði hann henni að Kjartan ætti vinkonu í Noregi sem héti Ingibjörg og væri systir Ólafs konungs. Guðrún sagði það vera góð tíðindi ef Kjartan fengi góða konu. Hún lét svo falla niður talið gekk á brott og var þá mjög rauð í andliti.
