Kaflar
29. Kjartan tekur kristna trú

Ólafur konungur hélt þing í Niðarósi og talaði langt mál og snjallt og boðaði kristna trú. Þrændir mótmæltu og vildu berjast við konung en hann svaraði þeim fullum hálsi og gerði þá hrædda. Nú sendi konungur menn til að hlera hvað Íslendingar segðu um trúmálin og kristniboðið. Þeir reyndust vera mjög neikvæðir gagnvart kristninni, og Kjartan gekk svo langt að segjast vilja brenna konunginn inni. Bolli taldi slíkt útilokað því að konungurinn væri „giftudrjúgur og hamingjumikill“. Konungur frétti af þessu tali og boðaði Íslendinga á fund sinn og þar viðurkenndi Kjartan af hafa talað um að brenna konung inni. Konungur vildi þó ekki refsa Kjartani og hann spáði því að hann mundi taka trú ótilneyddur og að landar hans í Noregi mundu þá gera það líka.
Þegar jólin gengu í garð vildi Kjartan að þeir félagar færu til kirkju til að sjá hvernig kristnir menn héldu messu. Í kirkjunni hélt konungurinn ræðu og gerðu kristnir menn góðan róm að máli hans. Eftir messuna ræddu Íslendingarnir um orð konungsins um fæðingu höfðingjans og átti þar við Jesú Krist. Kjartan sagðist nú vilja taka skírn og bað menn sína að gera það einnig. Konungur frétti strax af ákvörðun Kjartans, og daginn eftir voru fjölmargir Íslendingar skírðir, Bolli þeirra á meðal.
Þrændir: íbúar Þrándheims í Noregi
giftudrjúgur: gæfusamur, heilladrjúgur
