Kaflar

Inngangur

Laxdæla saga er ein af okkar allra frægustu sögum. Nafnið á sögunni tengist Laxárdal í Dölum, en þar og í næsta nágrenni er sögusviðið (Laxdælir = íbúar Laxárdals). Orðið Laxdæla saga merkir því saga af íbúum Laxárdals, en reyndar eiga margar lykilpersónur sér heimili utan þess dals.
Tvær konur eru áberandi í sögunni: Auður djúpúðga við upphaf sögu; og nokkrum kynslóðum síðar birtsit Guðrún Ósvífursdóttir sem við fylgjum síðan söguna á enda. Af körlunum er Kjartan Ólafsson frægastur. Leiðir hans og Guðrúnar eiga eftir að liggja saman og þá fer heldur betur að draga til tíðinda. Kjartan var afkomandi Auðar djúpúðgu; hún var langalangalangamma hans. En bróðir Auðar djúpúðgu var langalangalangafi Guðrúnar. Þess má geta til fróðleiks að Guðrún Ósvífursdóttir var langamma Ara fróða, okkar fræga sagnaritara.
Laxdæla saga er saga margra kynslóða, sannkölluð ættarsaga, og ættfaðirinn var Ketill flatnefur, norskur höfðingi sem fluttist til Bretlandseyja og var faðir Auðar djúpúðgu og langalangalangalangafi Guðrúnar og Kjartans!

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvaða konur eru einna mest áberandi í Laxdæla sögu samkvæmt því sem sagt er í innganginum hér að ofan?
2. Hvaða karl er í innganginum sagður vera frægasta persóna Laxdæla sögu?
3. Hvað merkir orðið Laxdæla saga?
4. Getur þú nefnt einn fróðan afkomanda Guðrúnar Ósvífursdóttur?
5. Getur þú nefnt mann sem var ættfaðir bæði Guðrúnar Ósvífursdóttur og Kjartans Ólafssonar?
6. Hvað merkir orðið Laxdælir sem kemur fyrir í titli sögunnar, Laxdæla saga?