Kaflar
1. Auður djúpúðga ættmóðir Kjartans; og Björn austræni ættfaðir Guðrúnar Ósvífursdóttur 1 1

Auður djúpúðga fæddist í Noregi en fluttist til Skotlands og giftist Ólafi hvíta herkonungi á Írlandi og átti með honum soninn Þorstein rauð. Ólafur konungur hvíti féll á Írlandi og þá fór Auður til sonar síns sem var þá orðinn konungur yfir hálfu Skotlandi. En Skotar sviku hann og drápu á Katanesi, nyrsta odda Skotlands. Auður neyddist þá til að flýja Skotland með ömmubörnin sín sjö, og þótti það mikið afrek að hún skyldi komast brott með þau og aðra göfuga frændur sína og vini. Hún sigldi fyrst til Orkneyja. Þar varð ein ömmustelpan eftir og hún varð ættmóðir jarlanna í Orkneyjum. Og Auður hélt áfram til Færeyja. Þar giftist önnur ömmustelpa hennar göfugum manni og frá þeim er komin helsta höfðingjaættin í Færeyjum sem kallast Götuskeggjar. Eftir þetta sigldi Auður til Íslands með lið sitt og þær fjórar ömmustelpur sem eftir voru og einn ömmustrák. Skip hennar brotnaði við Ölfusárós við suðurströnd landsins en menn og fé björguðust.
