Skólavefurinn

Spurningaspegill

Byrjaðu á prófinu — og finndu svörin á eftir.

484 spurningar1 af 9 flokkum tilbúinn

Flokkar

  • 20. öldin
  • Fyrri heimsstyrjöldin
  • Seinni heimsstyrjöldin
  • Náttúrufræði og vísindi
  • Tónlist
  • Íslandssaga
  • Íslenskar bókmenntir
  • Erlendar bókmenntir
  • Rómaveldi

Fleiri flokkar væntanlegir.

Spurningaspegill er nýjung hjá okkur á Skólavefnum en þar er hlutverk nemenda frábrugðið því þegar þeir fást við hefðbundið námsefni. Venjan er að nemendur lesa valið efni til að leggja á minnið eða tileinka sér eiginleika út frá því. Í kjölfarið taka þeir próf eða leysa verkefni sem byggir á þekkingunni sem þeir hafa aflað sér.

Hér má segja að öllu sé snúið við, þ.e. nemendur fá spurningarnar fyrst og eiga síðan að vinna út frá þeim. Þeir sem sagt byrja á prófinu. Á margan hátt getur þetta reynst sniðugt því eftir að hafa glímt við spurningarnar eru þeir meðvitaðri um hvað þeir þurfa að læra. Auk þess kynnast nemendur betur lykilhugtökum sem tengjast sögusviðinu.

Annað sem gerir þetta efni áhugavert er það að eftir að hafa þreytt prófið geta nemendur leitað upplýsinganna þar sem þeir eiga auðveldast með að verða sér úti um þær, hvort heldur það er í kennslubók eða á netinu. Má ætla að flestir noti netið til að leita upplýsinga og í leiðinni kynnast þeir vefsíðum sem hefðu annars farið framhjá þeim.

Þá er einnig hægt að læra rétt svör með því að fara beint í gagnvirka hlutann. Hann er þannig útbúinn að eftir að hafa þreytt prófið geta nemendur valið að endurtaka það með því að reyna sig einungis við þær spurningar sem þeir götuðu á og það er hægt að gera uns öllum spurningum er svarað rétt. Síðast en ekki síst er bara gaman að kanna þá þekkingu sem til staðar er.