1914–1918

Fyrri heimsstyrjöldin

Fyrri heimsstyrjöldin var mannskætt stríð sem geisaði í Evrópu í fjögur ár. Stríðið hefur verið nefnt Stríðið mikla og Stríðið sem enda átti öll stríð. Sá atburður sem miðað er við að marki upphaf stríðsins var morðið á Franz Ferdinand erkihertoga og ríkisarfa Austurríkis í Sarajevó þann 28. júní 1914. Átök hófust svo í ágúst 1914 og breiddust hratt út. Þegar upp var staðið lágu um tíu milljónir hermanna í valnum auk fjölda almennra borgara. Þá höfðu um tuttugu milljónir særst og ótal manns misst heimili sín og lifibrauð. Stríðinu lauk með uppgjöf Þjóðverja 11. nóvember 1918.

2 próf82 spurningar