Kaflar

3.) 28. mars

Kæra systir
Tíminn líður hægt hér í Arkangelsk. Við erum innilokaðir. Ísinn og snjórinn loka okkur alveg inni. Samt sem áður er ég hamingjusamari en ég hef nokkru sinni verið. Ég er að hefja mitt mikla ævintýri. En það er eitt sem mig skortir. Ég hef engan vin hér til að deila þessu með. Ég vildi ég hefði einhvern náinn til að tala við; einhvern sem þekkir vonir mínar og þrár ... já og allt það sem ég óttast. Ég hef fengið góðan skipstóra og fína áhöfn. Það eru allir ákafir að leggja í hann en við getum ekki lagt af stað fyrr en veðrið skánar. Veturinn hér var mjög harður en vorið virðist vera snemma á ferðinni. Við leggjum á Pólinn innan tíðar. Ég get ekki hætt að hugsa um hvort ég muni sjá þig aftur. En ég bið þig að skrifa mér þó svo að ekki sé víst að bréfin komist til skila. Það er fátt sem gleður mig meira en bréf frá þér. Minnstu mín ávallt í bænum þínum ef þú skyldir ekki sjá mig aftur í þessu lífi.
Þinn elskandi bróðir R. Walton

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?