Kaflar

4.) 17. júlí

Kæra systir:
Ég skrifa þessar fáu línur til að láta þig vita að allt sé í lagi með mig. Ferðin gengur vel og þetta bréf mitt mun ferðast til Englands með skipi frá Arkhangelsk. Eins og mér líður núna veit ekki hvort ég fái nokkru sinni snúið aftur til Englands. Við erum komnir mjög norðarlega og stórir ísjakar verða oft á vegi okkar þó svo að það virðist ekki trufla þá sem eru með mér neitt að ráði. Þegar blæs úr suðri er ekki svo kalt hér en samt mun kaldara en á Englandi á þessum árstíma. Ferðin hefur verið frekar tíðindalaus og lítið að segja frá þannig séð. Ég er enn mjög spenntur yfir að vera í þann veginn að fá að upplifa það sem mig hefur alltaf dreymt um. Mér skal takast það! Ég hreinlega verð að fá að upplifa drauminn. Ég læt hér staðar numið að sinni. Megi Guð halda verndarhendi sinni yfir þér systir mín góð.
Þinn bróðir R. Walton

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?