Kaflar

1930: Fyrsta heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu

Alþjóðaknattspyrnusambandið hafði alveg frá árinu 1904 reynt að koma á keppni í knattspyrnu þar sem öll bestu landslið heims mundu etja kappi hvert við annað. Það var þó ekki fyrr en árið 1930 að það tókst.  
Keppnin var haldin í júlí í Montevideo, höfuðborg Úrúgvæ, og tóku þrettán lið þátt í henni. Sjö þeirra voru frá Suður-Ameríku, en það voru Argentína, Bólivía, Brasilía, Perú, Paragvæ, Síle og gestgjafarnir Úrúgvæ. Fjögur lið mættu frá Evrópu en það voru Belgía, Frakkland, Júgóslavía og Rúmenía. Loks voru það tvö lið frá Norður- og Mið-Ameríku, Bandaríkin og Mexíkó. 
Leiknir voru átján leikir á átján dögum. Á úrslitaleikinn mættu um níutíu og þrjú þúsund áhorfendur en þar áttust við Úrúgvæ og Argentína. Var leikurinn mjög spennandi. Í hálfleik voru Argentínumenn yfir með tveimur mörkum gegn einu, en leiknum lauk með sigri Úrúgvæ sem skoruðu fjögur mörk gegn tveimur mörkum Argentínumanna.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvenær var byrjað að reyna að koma á fót keppni í knattspyrnu þar sem bestu landsliðin tækju þátt?
2. Hvenær var fyrsta HM í knattspyrnu?
3. Hvar var fyrsta HM í knattspyrnu haldið?
4. Hvað tóku mörg lið þátt í fyrstu HM keppninni?
5. Hvað sáu margir úrslitaleikinn í keppninni?
6. Hvaða þjóð varð fyrst til að sigra á HM í knattspyrnu?