Kaflar
1931: Borgarljós Chaplins

Kvikmyndin Borgarljós birtist almenningi árið 1931. Þá voru talmyndir óðum að leysa þöglu kvikmyndirnar af hólmi en Charles Chaplin sem bæði kostaði, leikstýrði og lék aðalhlutverkið hafði byrjað að gera hana 1928 og ákvað að hafa hana þögla þrátt fyrir áskoranir um annað.
Kvikmyndin segir frá vandræðum ungs umrennings sem leikinn er af Chaplin sjálfum. Hann verður yfir sig ástfanginn af blindri stúlku og kynnist ríkum auðkýfingi sem á við áfengisvanda að stríða. Sagan byggist einkum á samskiptum þeirra þriggja.
Þótt kvikmyndin væri þögul varð hún gríðarlega vinsæl og fékk líka góða dóma hjá gagnrýnendum. Margir halda því fram að Borgarljós sé besta kvikmynd Chaplins, og enn þann dag í dag er þessi mynd álitin meðal bestu kvikmynda allra tíma. Til marks um það þá lenti hún árið 2007 í ellefta sæti þegar sérfræðingar í bandaríska kvikmyndaiðnaðinum völdu bestu bandarísku kvikmyndirnar.