Kaflar
1915: Gandhi snýr aftur til Indlands

Mahatma Gandhi (1869-1948) fæddist á Indlandi en var menntaður sem lögfræðingur á Englandi. Skömmu eftir það flutti hann til Suður-Afríku þar sem hann starfaði í 21 ár. Þar tók hann þátt í baráttu gegn nýlenduherrum og kynntist friðsamlegum mótmælum.
Gandhi sneri aftur til Indlands 1915. Bretar réðu þar nánast öllu og beittu þegnana hörðu, einkum þá sem minna máttu sín. Þeir greiddu lágt verð fyrir alla indverska framleiðslu sem jók á fátækt fólksins og jafnframt kröfðu þeir Indverja um háa skatta.
Í upphafi barðist Gandhi einkum fyrir réttindum fátækra. Með því að fá fólk í sjálfboðavinnu vann hann að byggingu skóla og sjúkrahúsa og hvatti framámenn til að koma betur fram við lítilmagnann og að láta af kúgun kvenna. Var hann fangelsaður fyrir baráttu sína, en vegna mótmæla hundraða þúsunda var honum sleppt.
Frá 1921 barðist hann fyrir fullu sjálfstæði frá Bretum og er það trú margra að barátta hans hafi ráðið mestu um að Indverjar hlutu fullt sjálfstæði árið 1947. Hann skipulagði mótmæli og verkföll en öll mótmæli hans fóru friðsamlega fram.
Gandhi var myrtur af róttækum öfgamanni árið 1948.