Kaflar
1916: Snjóflóð í Tíról

Tíról er sambandsland í Austurríki. Upphaflega var Tíról mun stærra en það er í dag, en við tap Austurríkis í fyrri heimsstyrjöldinni fengu Ítalir suðurhelming héraðsins. Hið austurríska Tíról er því eingöngu norðurhluti hins gamla héraðs. Höfuðborgin þar er Innsbruck. Tíról er ákaflega fjalllent og fagurt hérað. Heiti héraðsins Tíról er dregið af bænum Tíról sem er að finna í Ítalska-Tíról eða Suður-Tíról, en ekkert er vitað með vissu um uppruna þess bæjarheitis.
Í fyrri heimsstyrjöldinni tóku hermenn Austurríkis-Ungverjalands og ítalskir hermenn sér stöðu hátt uppi í Ölpunum þar sem þeir töldu sig hafa betri yfirsýn og bardagastöðu en óvinurinn. Lögðu þeir á sig mikið erfiði að koma þungavopnum þar upp, búa sér til vígi og þess háttar.
En veturinn 1915-1916 var óvenju snjóþungur og sums staðar var hann um 12 metra djúpur. En allt þetta rask sem átti sér stað varð til þess að mörg snjóflóð féllu og er talið að um tíu þúsund hermenn hafi látið lífið í þeim.