Kaflar
1932: Hungursneyð í Sovétríkjunum

Þegar Lenín dó árið 1924 varð Stalín nánast einráður í Sovétríkjunum. Árið 1928 fór Stalín af stað með fimm ára áætlanir sínar sem áttu að auka framleiðni. Á svipuðum tíma fóru Sovétmenn að koma á fót svokölluðum samyrkjubúum sem áttu að sjá Sovétríkjunum fyrir nauðsynlegum matvælum, og krafa var sett á hvert bú að skila ákveðnu magni af afurðum til ríkisins. Landsvæði búanna var þá tekið frá þeim sem áttu þau og sett undir stjórn ríkisins. Var 91% lands sem hentaði til ræktunar tekið undir slík samyrkjubú.
En framleiðslan gekk ekki sem skyldi og samyrkjubúin skiluðu mun minni afurðum en þau áttu að gera. Afurðirnar dugðu rétt til að fylla kvóta ríkisins og ekkert var eftir fyrir þá sem unnu að framleiðslunni úti í sveitunum. Það leiddi til mikillar hungursneyðar, ekki síst í Úkraínu þar sem voru helstu landbúnaðarsvæðin í Sovétríkjunum. Er talið að um 4-7 milljónir manna hafi dáið úr hungri á þessum árum.