Kaflar

1910: Bókmenntir

Það var tuttugasta apríl að Halley halastjarnan birtist jarðarbúum aftur eftir 76 ár. Daginn eftir dó rithöfundurinn Mark Twain. Í ævisögu sinni sem hann skrifaði 1909 segir á einum stað: „Ég kom með Halley halastjörnunni árið 1835. Nú er hún væntanleg á næsta ári og ég á von á því að hverfa aftur með henni, því almættið hefur sagt að hér séu á ferðinni tvö fjarstæðukennd fyrirbæri. Þau komu saman og verða að fara saman.“  Þarna reyndist hann sannspár. 
Árið 1910 kom út smásagnasafnið Lady Molly of Scotland Yard eftir ungversku skáldkonuna barónessu Orczy. Aðalhetjan í sögunum er jafnframt ein fyrsta kven-leynilögga bókmenntanna. Orczy skrifaði einnig hina vinsælu sögu Rauða akurliljan og leikgerð sömu sögu ásamt manni sínum. Sú leikgerð sló öll aðsóknarmet. 
Rithöfundurinn Lev Nikolayevich Tolstoy lést 20. nóvember 1910, 82 ára að aldri. Síðustu ár sín skrifaði hann töluvert um dauðann og trúmál. Þá vildi hann gefa fátækum eigur sínar og afneita forréttindum sínum sem aðalsmaður. Skömmu áður en hann dó flýði hann að heiman og lést á járnbrautarstöð úr lungnabólgu. Þúsundir fátæklinga fylgdu honum til grafar.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvaða ár dó Mark Twain?
2. Hver var Lady Molly of Scotland Yard?
3. Hvaða frægu sögu skrifaði barónessan Orczy?
4. Hvaðan var barónessa Orczy?
5. Hvenær fæddist Lev Nikolayevich Tolstoy?
6. Hvað var óvenjulegt við jarðarför Tolstoys?