Kaflar

1909: Fyrsta flugið yfir Ermarsund

Árið 1909 bauð breska dagblaðið Daily Mail eitt þúsund sterlingspund þeim er fyrstur gæti flogið flugvél 36,6 kílómetra leið yfir Ermarsund. Hafði engum tekist að fljúga flugvél svo langa leið fram að því.
Hubert Latham, Frakki af breskum ættum, reyndi fyrstur allra að vinna til þessara verðlauna. Gerði hann það 19. júlí 1909. Í upphafi ferðar leit allt vel út, en þegar Latham átti eftir tíu kílómetra gafst vélin upp og hann varð að nauðlenda á sjónum þar sem honum var bjargað. 
Næstur til að reyna var franskur verkfræðingur að nafni Louis Blériot. Hann flaug glænýrri einþekju sem var 25 hestöfl með stóran utanborðsmótor. Lagði hann upp í sína för 25. júlí 1909 skammt frá borginni Calais.
Blériot lenti í vandræðum í byrjun ferðar og var nærri búinn að fljúga á ritsímalínur. Óhagstætt veður, hvassviðri og rigning gerði allt erfiðara.  Blériot tókst þó að hemja vélina, og þrjátíu og sjö mínútum síðar lenti hann í Dover og hreppti verðlaunin. Hann flaug í 250 feta hæð á meðalhraðanum 64 kílómetrum á klukkustund.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvað vildi breska blaðið Daily Mail greiða þúsund sterlingspund fyrir árið 1909?
2. Hvað var leiðin yfir Ermarsund löng?
3. Hver reyndi fyrstur að fljúga yfir Ermarsund?
4. Hvað komst Hubert Latham langt í tilraun sinni?
5. Hver hlaut verðlaunin sem Daily Mail bauð?
6. Hvað tók fyrsta flugið yfir Ermarsund langan tíma?
7. Hver var meðalhraði Blériots?