Kaflar

1911: Atburðir

Leiðangur Roalds Amundsens á Suðurskautið tók land á austurströnd Ross íshellunnar 14. janúar 1911, en hún er stærsta íshellan við Suðurskautið, um 500 þúsund ferkílómetrar að stærð. Roald Amundsen og félögum hans tókst fyrstum allra að komast á suðurpólinn 14. desember það ár.
Þann 28. júní 1911 féll loftsteinn ættaður frá plánetunni Mars til jarðar í Egyptalandi. Rannsóknir á þessum steini urðu til þess að vísindamenn telja mögulegt að vatn geti verið að finna á plánetunni.
Bandaríski sagnfræðingurinn og könnuðurinn Hiram Bingham fann Machu Picchu í Perú 24. júlí 1911 og greindi heimsbyggðinni frá þeim merka fundi í kjölfarið. Machu Picchu var víggirt borg Inka frá 15. öld og oft er vísað til hennar sem Hinnar týndu borgar Inkanna.  
Þann 21. ágúst 1911 var málverkinu Mona Lisa eftir Leonardo da Vinci stolið úr Louvre safninu í París. Þjófurinn var ítalski listamaðurinn Vincenzo Peruggia. Málverkinu var skilað til safnsins tveimur árum síðar. 
Þann þriðja október 1911 hóf Chevrolet opinberlega samkeppni á markaði í Bandaríkjunum gegn hinum vinsæla Ford T bíl.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvað tókst Roald Amundsen og félögum hans að gera fyrstum allra?
2. Hvað féll til jarðar á Egyptalandi 28. júní 1911?
3. Hverju greindi Hiram Bingham heimsbyggðinni frá árið 1911?
4. Hvað var Machu Picchu?
5. Hverju var stolið úr Louvre safninu 21. ágúst 1911?
6. Hverjir hófu samkeppni við Ford þann þriðja október 1911?