Kaflar
1917: Yfirlýsing hermanns í fyrri heimsstyrjöldinni

Það var í júní að breska skáldið Siegfried Sassoon ákvað að skrifa það sem hann kallaði Yfirlýsingu hermanns (A Soldier´s Declaration) til að lýsa yfir afstöðu sinni til stríðsins.
Þar neitar hann að snúa aftur í stríðið og mótmælir því. Segir hann að stríðið sé viljandi dregið á langinn af þeim sem hæglega gætu stöðvað það og losað milljónir við þá angist sem það hafi í för með sér.
Sassoon hafði sjálfviljugur gengið í herinn í ágúst 1914. Hann tók þátt í bardögum í Frakklandi og hlaut heiðursmerki fyrir framgöngu sína þar. Þegar hann særðist var hann sendur til Englands og þar skrifaði hann yfirlýsinguna 15. júní 1917 og hún birtist svo í blaðinu Times 15. júlí sama ár.
Yfirlýsing Sassoons var ekki hættulaus því liðhlaupar voru venjulega teknir af lífi eða fangelsaðir. Það þótti ekki gott afspurnar að stríðshetja sem Sassoon var yrði refsað og því var reynt með öllum ráðum að þagga niður í honum. Á endanum sneri hann aftur út á víglínuna 1918 þar sem hann taldi sig ekkert meira geta gert til að koma á friði. Þar að auki vildi hann ekki skiljast við vini sína á vígvellinum.