Kaflar
1923: Huda Sha'arawi stofnar fyrsta kvenréttindafélag Egyptalands

Þann sjötta mars 1923 stofnaði Huda Sha´arawi (1879-1947) fyrstu almennu kvenréttindasamtökin í Egyptalandi.
Huda fæddist árið 1879 en faðir hennar var mikilsvirtur embættismaður í Egyptalandi. Móðir hennar var ættuð frá Kákasus-fjöllunum. Hún hlaut menntun samhliða bræðrum sínum en slíkt var óvenjulegt á þeim tíma.
Þrettán ára var hún gift frænda sínum Ali Sha´arawi. Hún tók virkan þátt í uppreisn Egypta gegn yfirráðum Breta árið 1919, og árið 1922 er hún kom heim frá kvennaráðstefnu ákvað hún að neita að hylja andlit sitt og fylgdu margar konur hennar fordæmi þó margar væru henni ósammála. Hefur verið litið á þá ákvörðun hennar sem vendipunkt í baráttu egypskra kvenna.
Árið 1923 stofnaði Huda kvenréttindasamtökin og var kosinn fyrsti forseti þeirra. Markmið samtakanna var að berjast fyrir auknum réttindum kvenna á öllum sviðum.
Huda hóf snemma að skipuleggja fyrirlestra fyrir konur til að virkja þær og þá vann hún ötullega að því safna fé handa fátækum í landinu. Árið 1910 stofnaði hún kvennaskóla þar sem áhersla var lögð á alla almenna menntun til jafns við það sem körlum var kennt.
Árið 1986 gaf hún út endurminningar sínar Harem Years sem þykja gefa góða innsýn í aðstæður kvenna í Egyptalandi þess tíma.