Kaflar

1924: Finninn fljúgandi

Paavo Johannes Nurmi (1897-1973) var á sínum tíma besti hlaupari í heimi í milli- og lengri vegalengdum. Var hann gjarnan kallaður Finninn fljúgandi. Samtals náði hann tuttugu og tveimur heimsmetum á sinni tíð og vann níu gullverðlaun og þrenn silfurverðlaun í þeim tólf hlaupum sem hann tók þátt í á ólympíuleikunum. Þegar hann var á hátindi síns ferils vann hann eitthundrað tuttuguogeitt hlaup í röð, og á sínum fjórtán ára ferli tapaði hann aldrei víðavangshlaupi eða tíu þúsund metra hlaupi. 
Nurmi var af verkafólki kominn og hætti í skóla 12 ára gamall til að leggja sitt af mörkum til að framfleyta fjölskyldunni. Þegar hann var fimmtán ára fór hann fyrst að æfa markvisst. 
Á ólympíuleikunum árið 1920 byrjaði hann á því að vinna silfurverðlaun í 5000 metra hlaupi og vann svo gull í 10000 metrunum og víðavangshlaupum. Árið 1923 var hann heimsmethafi í míluhlaupi, 5000 metra hlaupi og 10000 metra hlaupi en það hefur enginn leikið eftir honum. 
Þá sigraði hann á ólympíuleikunum árið 1924 með nýjum heimsmetum í 1500 metra hlaupi og 5000 metra hlaupi og það sem meira er þá leið aðeins ein klukkustund milli hlaupanna.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Undir hvaða gælunafni var Paavo Johannes Nurmi þekktur?
2. Hvað setti Paavo Johannes Nurmi mörg heimsmet?
3. Hvað vann Paavo Johannes Nurmi til margra verðlauna á ólympíuleikum?
4. Hvað hefur enginn leikið eftir Paavo Johannes Nurmi?
5. Hvað var óvenjulegt við það þegar Nurmi vann gull í 1500 metra og 5000 metrar hlaupum á ólympíuleikunum 1924?