Kaflar

1922: Sovétríkin verða til

Romanof-ættin sem hafði verið við völd í Rússlandi frá 1613 var hrakin frá völdum í byltingunni árið 1917. Þá sneri Vladimir Lenín leiðtogi bolsévíka heim úr útlegð enda hafði hann barist fyrir byltingu í Rússlandi. 
Í kjölfarið kom þingið (Dúman) á fót bráðbirgðastjórn í landinu en Lenín vildi ekkert annað en algjör yfirráð sósíalista. Alexander Kerensky fór fyrir bráðabirgðastjórninni 
og hann notaði herinn til að berja niður allar uppreisnir af mikilli hörku. 
Borgarstyrjöld ríkti í Rússlandi næstu árin milli bolsévíka og bráðabirgðastjórnarinnar og var mannfall mikið á báða bóga. Í janúar 1918 var reynt að koma á vopnahléi og lögðu menn úr báðum liðum til að komið yrði á lýðræði og að ný stjórn tæki við í kjölfar almennra kosninga. En Lenín hafnaði því afdráttarlaust. 
Þá gerðist það 16. júlí 1918 að bolsévíkar tóku keisarann Nikulás annan af lífi ásamt konu sinni og fimm börnum.  
Eftir fimm ára styrjöld stóðu bolsévíkar uppi sem sigurvegarar, og 30. desember 1922 voru Sovétríkin stofnuð.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvenær var Romanof-ættin hrakin frá völdum í Rússlandi?
2. Hvað hafði Romanof-ættin ríkt lengi í Rússlandi þegar henni var steypt af stóli?
3. Hvað kallast rússneska þingið?
4. Hver fór fyrir bráðabirgðastjórn í Rússlandi eftir fall keisarans?
5. Hverju hafnaði Lenín alfarið árið 1918?
6. Hvað átti sér stað 16. júlí 1918?
7. Hvenær voru Sovétríkin opinberlega stofnuð?