Kaflar
1908: Fyrsti Ford T bíllinn kemur á götuna

Framleiðsla bíla hófst í kringum 1880. Var hver bíll mjög dýr í framleiðslu og ekki á færi nema auðugra að kaupa sér. Það breyttist með tilkomu Ford Model T, en hann er talinn vera fyrsti fjöldaframleiddi bíllinn sem venjulegt fólk hafði efni á að kaupa. Hann kom fyrst á götuna 1. október árið 1908 og framleiðslu hans lauk 26. maí 1927.
Ástæða þess að Ford fyrirtækið gat boðið upp á jafn ódýran bíl var innleiðing færibandsins við framleiðsluna. Þeir sem hönnuðu þennan fyrsta fjöldaframleidda bíl voru bandarískur maður sem hét Childe Harold Wills og tveir ungverskir verkfræðingar, Joseph A. Galamb og Eugene Farkas.
Allt í allt munu hafa selst um 15 milljón Ford T bílar og það var ekki fyrr en árið 1972 að önnur bíltegund hafði selt fleiri eintök, en það var Volkswagen bjalla.
Árið 2012 var Ford T bíllinn enn á lista yfir tíu mest seldu bíla allra tíma.