Kaflar

1921: Franklin D. Roosevelt lamast

Lögfræðingurinn Franklin D. Roosevelt, sem seinna átti eftir að verða þrítugasti og annar forseti Bandaríkjanna, fór eitt sinn að heimsækja konu sína og tvö börn þeirra á eyna Campobello í Kanada þar sem þau dvöldu í sumarleyfi. Hann fann þá í fyrsta sinn fyrir lömunartilfinningu og veiktist heiftarlega í kjölfarið og var nær dauða en lífi um tíma. Þetta var árið 1921 og hann var þá einungis þrjátíu og níu ára gamall. 
Eftir þetta þurfti Roosevelt mikla þjálfun til að koma sér aftur af stað, en þaðan í frá var hann nánast bundinn við hjólastól. Hann lét það þó ekki aftra sér frá því að sækjast eftir að verða forseti Bandaríkjanna sem hann varð árið 1933. Hann hélt því embætti þangað til hann lést árið 1945, skömmu fyrir lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Hafa margir álitið að hann hafi verið einn gæfuríkasti forseti Bandaríkjanna. 
Hann þakkaði konu sinni Eleanor Roosevelt það að hann hefði getað það sem hann gat. Hún var mjög pólitísk og er það skoðun margra að ýmsar hugmyndir hans hafi komið frá henni.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvað upplifði Franklin D. Roosevelt í ágúst 1921?
2. Hvað var Roosevelt gamall þegar þetta átti sér stað?
3. Hvenær varð Franklin D. Roosevelt forseti Bandaríkjanna?
4. Hvað var Franklin D. Roosevelt lengi forseti?
5. Hvaða einstaki stórviðburður átti sér stað í heiminum í forsetatíð Roosevelts?
6. Hverjum þakkaði Franklin Roosevelt árangur sinn?
7. Hvað hét kona Roosevelts?