Kaflar

1926: Hirohito verður keisari í Japan

Þann 26. desember 1926 varð Hirohito keisari yfir Japan, þá einungis tuttugu og fimm ára gamall. Var hann hundrað tuttugasti og fjórði keisari Japans. Þetta voru umbrotatímar í sögunni þar sem Japanir hervæddust í auknum mæli og reyndu að stækka ríki sitt og auka áhrif sín í heiminum.
Hirohito stýrði landinu á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar þegar Japanir fóru mikinn í Asíu og á Kyrrhafinu. Voru flest ódæðisverka Japana á þeim tímum gerð í hans nafni. 
Þegar Japanir gáfust upp í seinni heimsstyrjöldinni vildu margir láta keisarann svara til saka fyrir öll þau óhæfuverk sem Japönum voru eignuð, en ákveðið var að gera það ekki ef hann yrði samvinnuþýður í framhaldinu, og það varð hann. Þann fyrsta janúar 1946 var hann látinn afsala sér öllum beinum völdum og samkvæmt nýrri stjórnarskrá Japana sem tók gildi 1947 er keisarinn einungis valdalaus táknmynd ríkisins útávið. 
Árið 1979 var Hirohito eini þjóðhöfðinginn í heiminum með keisaranafnbót og þegar hann lést árið 1989 var hann sá þjóðhöfðingi sem hafði ríkt lengst allra. Akihito sonur hans tók við nafnbótinni árið 1989.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvað var Hirohito gamall þegar hann varð keisari í Japan?
2. Hvað höfðu margir keisarar ríkt í Japan á undan Hirohito?
3. Hver var áhersla Japans í utanríkismálum þegar Hirohito varð keisari?
4. Af hverju var Hirohito ekki sóttur til saka eftir síðari heimsstyrjöldina?
5. Hvað gerði Hirohito 1. janúar 1946?
6. Hvað ríkti Hirohito lengi?