Kaflar
1927: Út í vitann

Sagan Út í vitann eftir Virginu Woolf (1882-1941) kom út árið 1927. Hefur hún verið flokkuð í hópi bestu skáldsagna 20. aldar. Woolf sagði sjálf að þegar hún skrifaði hana hefði hún verið undir áhrifum frá módernistum eins og James Joyce (Ulysses) og Marcel Proust (Í leit að glötuðum tíma).
Sagan tekur fyrir tvo daga í lífi Ramsay fjölskyldunnar með tíu ára millibili. Byggir hún einkum á innri hugsunum og hugleiðingum þar sem hlaupið er milli sjónarhorna og einstaklinga. Í sögunni er ekki mikil atburðarás eða mikið um samtöl nema hvað hugsanir sögupersónanna knýja söguna áfram og þaðan fær lesandinn spunnið upp söguþráð.
Í sögunni leikur höfundur sér með tíma-hugtakið auk þess sem hún beinir sjónum að venjum og siðum samtímans. Staða kynjanna er mjög til umræðu í verkinu eins og í mörgum öðrum sögum hennar.
Virgina Woolf þótti einn besti rithöfundur 20. aldar og hafa nokkrar bækur hennar verið þýddar á íslensku.