Kaflar

1925: Hinn mikli Gatsby (The Great Gatsby) eftir F. Scott Fitzgerald

Skáldsagan The Great Gatsby eftir F. Scott Fitzgerald er ein af þessum skáldsögum sem eiga erindi til fólks á öllum tímum. Sagan gerist snemma á 20. öld og þykir lýsa af ótrúlegri næmni því hugarfari sem ríkti í Bandaríkjunum á þeim tíma er hún kom út en það var árið 1925. Í sögunni skoðar höfundur stéttarstöðu, ríkidæmi, kynjamun og síðast ekki síst ameríska drauminn. 
Í dag er þessi saga talin ein af lykilbókum bandarískra bókmennta og skyldulesning allra sem vilja vera teknir alvarlega í bókmenntalegri umræðu. 
Í byrjun seldist hún ekki vel og töluvert minna en fyrri bækur Fitzgeralds. Hún fékk heldur ekki góða dóma í fyrstu og var eins og gagnrýnendur áttuðu sig ekki alveg á henni. Það var ekki fyrr en í síðari heimsstyrjöldinni að vinsældir hennar jukust, en sjálfur upplifði Fitzgerald ekki vinsældir hennar því hann lést árið 1940. 
Upprunaleg kápa bókarinnar þykir nokkuð merkileg og var Fitzgerald sjálfur svo hrifinn af henni að hann endurskrifaði hluta sögunnar til að kápan félli betur að innihaldinu. Höfundur kápunnar var hönnuðurinn Francis Cugat. Sagan kom út í íslenskri þýðingu Atla Hilmarssonar árið 1987.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvenær kom sagan The Great Gatsby út?
2. Af hverju þykir sagan jafn merkileg og raun ber vitni?
3. Hvað þótti gagnrýnendum um söguna þegar hún kom út?
4. Af hverju upplifði Fitzgerald ekki vinsældir sögunnar?
5. Hvernig hafði kápa bókarinnar áhrif á söguna?