Kaflar

1913: Jass

Í október árið 1913 var orðið jazz (jass) notað í fyrsta sinn á prenti svo vitað sé. Það var í blaðinu San  Francisco Bulletin
Jass er tónlistarstefna sem átti uppruna sinn í New Orleans í Bandaríkjunum á síðari hluta 19. aldar og byrjun þeirrar tuttugustu og sótti rætur sínar til ragtime tónlistar og blústónlistar. Varð tónlistarstefnan gríðarlega vinsæl á stuttum tíma og breiddist út um allan heim.  Þá þróaðist hún á marga vegu. Af kunnu hljómlistarfólki sem tileinkaði sér þessa stefnu má nefna Louis Armstrong, Billie Holiday, Bix Beiderbecke, Ellu Fitzgerald og Sidney Bechet svo einhverjir séu nefndir.   
Í dægurtónlist var Irving Berlin mjög vinsæll lagahöfundur á þessum tíma en hann samdi t.a.m. lög eins og What´ll I Do?, Puttin´on the Ritz, Blue Skies, White Christmas og fleiri kunna smelli. 
Í klassískri tónlist samdi Erik Satie verkið Descriptions automatiques fyrir píanó, Sergei Rachmaninoff samdi píanósónötu númer 2 og Claude Debussy verkið Syrinx fyrir flautu.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvaða tónlistarorð var fyrst notað á prenti árið 1913?
2. Hvar þróaðist jassinn fyrst?
3. Úr hvaða tónlistarstefnum var jassinn einkum sprottinn?
4. Nefndu fjóra listamenn sem tileinkuðu sér jass snemma.
5. Hver samdi lagið Blue skies?
6. Hvaða verk samdi Claude Debussy á árinu 1913?