Kaflar

1912: Kína verður lýðveldi

Kína hafði verið stjórnað af ýmsum einræðisherrum í fjögur þúsund ár, en við lok 19. aldar var farið að gæta mikillar óánægju meðal almennings. Quing ættin sem átti að heita við völd réð litlu, og erlend nýlenduveldi stjórnuðu allri verslun til og frá landinu auk þess sem kristniboðar flæddu yfir landið.
Þetta varð til þess að stór hópur fátæks verkafólks myndaði fylkingu sem fékk heitið Boxarar. Þeir vildu sporna gegn erlendum áhrifum og fella keisaraveldið. Fyrsta verk þeirra var að ráðast gegn kristniboðum og drepa þá. Í því verki voru þeir studdir af keisaraynjunni Cixi sem vildi beina óánægju þeirra frá keisarastjórninni. 
Átökin hófust í sveitum og breiddust út til borganna, og blasti þá mikil ógn við útlendingum víða um landið. Í kjölfarið sendu vestræn ríki sameiginlegt herlið til Kína og vann það bug á sameiginlegum herjum Boxaranna og keisaraveldisins árið 1901. Voru Kínverjum settir afarkostir og þurftu þeir að greiða miklar stríðsskaðabætur. Við þetta veiktist keisaraveldið enn frekar.  
Á endanum leiddi þetta til þess að herinn gerði uppreisn gegn keisaraveldinu og brothættu lýðveldi var komið á fót árið 1912.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvaða ætt var við völd í Kína í lok 19. aldar og upphafi 20. aldar?
2. Hverjir stjórnuðu allri verslun í Kína á þessum tíma?
3. Hverjir voru svokallaðir Boxarar?
4. Hverjum réðust Boxararnir fyrst gegn?
5. Hvaða atburður varð í Kína árið 1901?
6. Hvað varð til þess að lýðræði var komið á í Kína árið 1912?