Kaflar

1927: Fyrsta heila kvikmyndin með tali og tónlist

Kvikmyndin The Jazz Singer frá árinu 1927 er talin vera fyrsta kvikmyndin í fullri lengd þar sem notast er við tal og tóna. Áður höfðu nokkrar kvikmyndir komið út sem talað var inn á eins og The Story of the Kelly Gang (Ástralía 1906), Les Misérables (Vesalingarnir; Bandaríkin 1909) og Quo Vadis? (1913), en aldrei þar sem bæði komu saman tal og tónar.  
Kvikmyndinni sem er í grunninn dans- og söngvamynd var leikstýrt af Alan Crossland en í aðalhlutverkum var söngvarinn frægi Al Jolson.
Kvikmyndin var byggð á samnefndu leikriti eftir Samson Raphaelson sem aftur byggði á smásögu hans The Day of Atonement  (Dagur friðþægingarinnar).
Sagan segir frá gyðingnum Jakie Rabinowitz sem afneitar hefðum fjölskyldu sinnar til að gerast söngvari. 
Árið 1998 var kvikmyndin valin af Kvikmyndastofnun Bandaríkjanna ein af hundrað bestu amerísku kvikmyndum allra tíma. Lenti hún í nítugasta sæti. 
Myndin var endurgerð árið 1980 og þá með söngvaranum Neil Diamond í aðalhlutverki.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvað var sérstakt við kvikmyndina The Jazz Singer frá 1927?
2. Hvers konar kvikmynd var þetta?
3. Hver var í aðalhlutverki í upprunalegu kvikmyndinni The Jazz Singer?
4. Á hvaða smásögu var kvikmyndin The Jazz Singer byggð?
5. Um hvað fjallar kvikmyndin í stuttu máli?
6. Hvaða dóm fékk kvikmyndin hjá Kvikmyndastofnun Bandaríkjanna árið 1998?
7. Hver lék aðalhlutverkið í endurgerð kvikmyndarinnar 1980?