Kaflar

1903: Fyrsta Tour de France hjólreiðakeppnin

Fyrsta Tour de France hjólreiðakeppnin fór fram í júlí árið 1903. Var það blaðið L´Auto sem  stóð fyrir henni. Keppnin stóð frá fyrsta til nítjánda júlí og voru hjólaðir 2428 kílómetrar í sex áföngum. 
Blaðið L´Auto stofnaði til keppninnar til að auglýsa sig en salan á blöðum þess hafði dregist saman með tilkomu annars blaðs, Le Vélo
Keppnin var sú fyrsta sinnar tegundar þar sem hjólað var í áföngum. Eins og áður sagði voru áfangarnir eða leiðirnar sex talsins en hver leið mun lengri en þær eru í dag. 
Sigurvegari þessarar fyrstu keppni var Maurice Garin ítalsk-franskur sótari (hreinsari skorsteina).   
Garin tók forystuna á fyrstu leiðinni og hélt henni út alla keppnina þó hann næði ekki að sigra á leið tvö, þrjú og fjögur. Þegar upp var staðið var hann þremur ˙klukkutímum á undan næsta keppanda. 
Keppnin skilaði stofnendum hennar árangri því útbreiðsla L´Auto sexfaldaðist í kjölfarið. Þess vegna var ákveðið að halda hana aftur ári síðar. Því má bæta við að blaðið Le Vélo var farið á hausinn áður en næsta keppni hófst.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvenær fór fyrsta Tour de France hjólreiðakeppnin fram?
2. Hverjir stóðu fyrir fyrstu Tour de France hjólreiðakeppninni?
3. Hvað voru hjólaðir margir kílómetrar í fyrstu Tour de France keppninni?
4. Hver var helsti hvatinn að fyrstu Tour de France keppninni?
5. Hver sigraði í fyrstu Tour de France keppninni?
6. Á hverjum af sex leiðum keppninnar sigraði Garin?
7. Hverju munaði á fyrsta og öðru sætinu í lokin?
8. Hve mikið jókst sala blaðsins L´Auto eftir fyrstu keppnina?