Kaflar
1904: Vinna við Panamaskurðinn hefst aftur

Panamaskurðurinn er manngerður 82 kílómetra langur skurður sem opnar fyrir skipasamgöngur á milli Atlantshafs og Kyrrahafs. Áður en hann kom til urðu skip að sigla fyrir Hornhöfða en sú leið var bæði hættuleg og tímafrek.
Skurðurinn liggur í gegnum land sem Kólumbía og Frakkland réðu yfir og síðar Bandaríkin einnig. Það voru Frakkar sem hófu vinnuna árið 1881 en urðu fljótt að stöðva vinnuna vegna skorts á fjármagni. Árið 1903 klauf Panamahéraðið sig frá Kólumbíu og íbúarnir stofnuðu sérstakt ríki. Í kjölfarið réðust Bandaríkin í að halda áfram með skurðinn árið 1904 og tókst að ljúka honum á tíu árum. Var skurðurinn opnaður 15. ágúst árið 1914. Framtakið kostaði milljónir dollara, og telja margir að skurðurinn sé verkfræðilegt undur.
Bandaríkin réðu yfir skurðinum lengi vel eða fram til ársins 1977. Þá tóku við sameiginleg yfirráð Panama og Bandaríkjanna. Það var svo árið 1999 að Panama tók skurðinn alfarið yfir. Hefur skurðurinn verið þeim gríðarleg tekjulind allar götur síðan.