Kaflar
1920: Bannárin í Bandaríkjunum

Árið 1920 var framleiðsla, innflutningur og sala á öllum áfengum drykkjum bönnuð í Bandaríkjunum. Stóð það bann til 1933 og hafa þessi ár verið kölluð „bannárin“.
Ástæður fyrir þessu voru margþættar en fyrst og fremst voru það hin víðtæku vandamál sem talið var að rekja mætti til áfengisneyslu, s.s. alkóhólismi, heimilisofbeldi og fátækt. Höfðu vandræði af þessu tagi farið vaxandi samfara mikilli neyslu á árunum fyrir bannið.
Ekki voru allir sammála þessari löggjöf og sögðu bannið skerða frelsi einstaklingsins, auk þess sem það stuðlaði að auknum glæpum. Þá fundu yfirvöld fyrir því að missa af öllum skatttekjum sem þau höfðu haft af áfengissölu. Þeir peningar rynnu nú óskertir til glæpamanna og svartamarkaðsbraskara.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að þrátt fyrir ólöglega framleiðslu og drykkju hafi drykkja almennt minnkað töluvert á þessum árum og þá hafi dregið úr sjúkdómum, s.s. lifrarbólgu, veikindum af geðrænum toga og barnadauða. Aðrar rannsóknir sýna að neyslan hafi einungis verið falin og salan verið í höndum glæpamanna sem mötuðu krókinn.