Kaflar
1905: Uppreisn í Rússlandi

Romanof-ættin sem hafði verið við völd frá 1613 í Rússlandi og stjórnað með harðri hendi var orðin mjög óvinsæl. Fátækt var landlæg nema hjá aðlinum og þeim sem stjórnvöld studdu. Aðrir höfðu varla til hnífs og skeiðar.
Þann 22. janúar 1905 söfnuðust mótmælendur undir stjórn prestsins Georgy Gapons fyrir framan vetrarhöll keisarans í Pétursborg til að láta óánægju sína í ljós og krefjast umbóta. Hermenn keisarans brugðust við með því að skjóta á varnarlausan mannfjöldann og hundruð manna létust og særðust. Vakti þetta mikla reiði hjá almenningi.
Í kjölfarið kom til mótmæla út um allt Rússland. Verkafólk lagði niður vinnu og hluti hersins gerði uppreisn. Uppreisnin var á endanum barin niður og keisarinn bauð upp á einhverjar umbætur til málamynda eins og það að auka völd þingsins (Dúmunnar) sem hann gat þó lagt af hvenær sem hann vildi. Ekki bætti úr skák þegar Rússar urðu svo að játa sig sigraða í stríði við Japani í febrúar á því sama ári (1905). Það er trú margra að þetta hafi verið upphafið að falli keisarans árið 1917.