Kaflar
1906: Jarðskjálftinn í San Francisco

Það var að morgni 18. apríl að jarðskjálfti reið yfir borgina San Francisco af stærðinni 7,9 – 8,2 á Richter kvarðanum. Stóð hann yfir í 48 sekúndur og eftir lá borgin í rjúkandi rústum.
Í jarðskjálftanum rofnuðu gasleiðslur og leiddi það til þess að eldar kviknuðu víða um borgina. Erfitt reyndist að eiga við þá þar sem vatn skorti, en flestar vatnsleiðslur höfðu farið í sundur. Það tók brunaliða þrjá sólarhringa að ráða niðurlögum eldanna.
Að minnsta kosti tuttugu og fimm þúsund hús eyðilögðust og tvö hundruð og fimmtíu þúsund manns misstu heimili sín og voru á vergangi. Til að koma fólkinu í skjól voru reistar tjaldbúðir og urðu margir að dvelja þar mánuðum saman. Skemmdirnar voru metnar á tvö hundruð milljónir dollara.
Samkvæmt opinberum tölum létust 375 manns í jarðskjálftanum, en fræðimenn telja að fórnarlömbin hafi verið nær þremur þúsundum.