Kaflar
1928: Alexander Fleming finnur upp pensilín

Alexander Fleming (1881-1955) var skoskur lyfjafræðingur sem þekktur er fyrir að finna upp pensilínið árið 1928. Það gerðist þannig að þegar hann kom heim úr fríi með fjölskyldunni tók hann eftir eyðu í kringum myglusvepp sem hafði vaxið meðal baktería sem hann hafði skilið eftir í óþvegnum skálum þegar hann fór. Dró hann þá ályktun af þessu að efni sem sveppurinn gæfi frá sér dræpi bakteríurnar.
Eftir að hafa rannsakað þetta lítillega kynnti hann hugmyndina fyrir öðrum en fékk lítinn stuðning og á endanum gaf hann þetta upp á bátinn.
Svo var það í árið 1939 að áhugi fyrir uppgötvun Flemings kviknaði á ný. Þá þróaði hópur vísindamanna undir stjórn Howard Floreys efnið og setti í sýklalyf sem var mikið notað af bandamönnum í síðari heimsstyrjöldinni og bjargaði þar mörgum mannslífum. Lyfið pensilín var svo sett á almennan markað árið 1944.
Fleming var sleginn til riddara árið 1944 fyrir framlag sitt og var honum ásamt meðlimum úr rannsóknarhópnum veitt nóbelsverðlaun í lífeðlis- og læknisfræði fyrir uppgötvunina árið 1945.
Fleming var þó ekki fyrstur til að taka eftir áhrifum myglunnar því franskur læknanemi gerði það árið 1896 en þær athuganir leiddu ekki lengra.