Kaflar
1983: Ýmislegt

Þann áttunda febrúar komst hljómplatan Thriller með Michael Jackson í fyrsta sæti bandaríska vinsældalistans og hélt því sæti samfellt í 37 vikur. Varð platan mest selda hljómplata allra tíma en áætlað er 110 milljón eintök hafi selst af henni á heimsvísu.
Þann ellefta maí áttust skoska knattspyrnuliðið Aberdeen og spænska liðið Real Madrid við í úrslitaleik Evrópumeistaranna. Leiknum lauk með 2-1 sigri Aberdeen.
Í júní á þessu ári var íranska táningsstúlkan Mona Mahmudnizhad hengd í Íran ásamt níu öðrum konum fyrir það eitt að tilheyra Bahái trúarsamfélaginu.
Í nóvember sá fyrsta útgáfan af Word ritvinnsluforritinu dagsins ljós. Það voru forritararnir Richard Brodie og Charles Simonyi sem áttu heiðurinn af því. Forritinu var dreift ókeypis í nóvemberútgáfu tímaritsins PC World.
Þann 25. desember gaf söngvarinn Marvin Gaye föður sínum skammbyssu í jólagjöf. Með henni átti hann að geta varið sig gegn óboðnum gestum. Nokkrum mánuðum síðar notaði faðirinn byssuna til að drepa Marvin son sinn.
Á þessu ári hlaut breski rithöfundurinn William Golding bókmenntaverðlaun Nóbels. Fyrsta bók hans var skáldsagan Lord of the Flies sem kom út árið 1954. Hún birtist á íslensku undir heitinu Höfuðpaurinn árið 1970.