Kaflar
1984: Hörmungarnar í Bhopal

Árið 1970 hóf bandaríska fyrirtækið Union Carbide rekstur í Bhopal á Indlandi til að framleiða landbúnaðarafurðir fyrir sístækkandi markað þar í landi. Árið 1979 hófu þeir svo framleiðslu á skæðu skordýraeitri en til að draga úr kostnaði og auka hagnað voru kostnaðarsamar öryggisreglur brotnar og dregið úr almennu viðhaldi.
Þá gerðist það 2. desember árið 1984 að bilun verður í búnaði með þeim afleiðingum að gas lak óhindrað út í umhverfið yfir nóttina. Þegar íbúarnir vöknuðu um morguninn lá eiturgas yfir allri borginni með skelfilegum afleiðingum. Þúsundir létust á nokkrum klukkustundum og öll sjúkrahús yfirfylltust á augabragði. Þá voru allar götur fullar af dauðum hundum, köttum, rottum og músum. Þúsundir reyndu að flýja með brýnustu nauðsynjar og margir tróðust undir.
Er áætlað að um 20 þúsund manns hafi látist af beinum völdum lekans og yfir 500 þúsund hafi búið við varanleg örkuml. Þá mengaðist landbúnaður í nágrenninu og bændur misstu allt lífsviðurværi sitt.
Fyrirtækið var sótt til saka en það var ekki fyrr en mörgum árum síðar að fólk fékk bætur, allt of litlar og allt of seint. Var slysið talið versta iðnaðarslys sögunnar á þeim tíma.