Kaflar

1993: Ýmislegt

Þann fyrsta janúar skiptist Tékkóslóvakía í tvö ríki, Tékkland og Slóvakíu, en  Tékkóslóvakía hafði orðið til árið 1918 í kjölfar fyrri heimstyrjaldarinnar. Rithöfundurinn Vaclav Havel var kjörinn fyrsti forseti lýðveldisins Tékklands.
Leikmenn landsliðsins í Sambíu fórust í flugslysi á leið sinni til Senegal þar sem liðið átti að keppa í undanrásum heimsmeistarakeppninnar.
Kvikmyndin Drakúla í leikstjórn Francis Ford Coppola var frumsýnd í Bretlandi þar sem hún setti sölumet. Myndin var byggð á skáldsögu Bram Stokers frá 1897.
Bill Clinton varð fertugasti og annar forseti Bandaríkjanna.
Poul Nyrup Rasmussen tekur við sem forsætisráðherra Danmerkur af Poul Schluter.
Erítrea fær sjálfstæði frá Eþíópíu.
Benazir Bhutto varð forsætisráðherra Pakistan í annað sinn. Hún varð fyrst forsætisráðherra í Pakistan árið 1988 til 1990 og var þá fyrsta konan til að verða forsætisráðherra í lýðræðislegum kosningum í landi þar sem meirihluti íbúanna eru múslimar.
Nelson Mandela og F.W. de Klerk eru veitt friðarverðlaun Nóbels.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvenær varð Tékkóslóvakía til sem ríki?

2. Hver varð fyrsti forseti lýðveldisins Tékklands?

3. Hver skrifaði söguna Drakúla?

4. Hver varð forseti Bandaríkjanna 1993?

5. Hvar var Benazir Bhutto forsætisráðherra?