Kaflar

1992: Hungursneyð í Sómalíu

Sómalía er við austurströnd Afríku. Á síðari hluta 19. aldar var landið nýlenda sem Bretar og Ítalir skiptu á milli sín. Báðir hlutarnir öðluðust sjálfstæði 1960 og sameinuðust í lýðveldi. 
Árið 1969 var gerð uppreisn gegn ríkjandi valdhöfum og hershöfðingjastjórn Mohamed Barre hrifsaði völdin. Árið 1977 var almenn óánægja í landinu með stjórn Barres og borgarastyrjöld braust út. Árið 1991 tókst uppreisnarmönnum að fella stjórn Barres með hjálp frá Eþíópíu og Líbíu. En borgarastyrjöldin hélt áfram.
Öll þessi átök urðu til þess að landbúnaður sem íbúar lifðu á brást og hungursneyð varð í landinu. Einungis árið 1991 er talið að 300.000 manns hafi dáið þar úr hungri. Sameinuðu þjóðirnar sendu mat en stríðandi fylkingar stálu matnum. Þrjár milljónir manna sáu fram á hungursneyð og tvær milljónir flýðu landið.
Sameinuðu þjóðirnar sendu her til Sómalíu árið 1992 og ástandið lagaðist um tíma. En um leið og dregið var úr aðstoð fór allt í sama farið og stríðandi fylkingar Sómala réðust einfaldlega gegn herjum Sameinuðu þjóðanna. Að lokum gafst alþjóðasamfélagið upp og borgarastyrjöldin hélt áfram.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvar er Sómalía?

2. Hvaða nýlenduþjóðir skiptu Sómalíu á milli sín?

3. Hvenær öðlaðist Sómalía sjálfstæði og gerðist lýðveldi?

4. Hvað breyttist í Sómalíu 1969?

5. Hvenær braust borgarastyrjöld út í Sómalíu?

6. Hvað hefur borgarastyrjöldin í Sómalíu haft í för með sér?