Kaflar
1994: Fjöldamorð í Rúanda

Íbúar landsins samanstanda að stórum hluta af tveimur ættbálkum, þ.e. Hútúum og Tútsum og hafa lengi verið átök milli þeirra.
Árið 1994 var efnahagur landsins mjög slæmur og flugvél sem forseti landsins af ætt Hútúa var í var skotin niður.
Enginn lýsti yfir ábyrgð á verkinu en Hútúar sökuðu Tútsa um ódæðið. Daginn eftir hóf her landsins undir stjórn Hútúa handahófskennt að drepa Tútsa í höfuðborginni sem svo breiddist út um allt land. Tútsar brugðust til varnar og nú tók við ógnaröld í landinu. Heiftin var gríðarleg og börnum voru jafnvel fengin vopn til að drepa nágranna sína.
Á innan við einum mánuði lá yfir ein milljón manna í valnum en það var um tíundi hluti þjóðarinnar. Milljónir flýðu til nærliggjandi ríkja, og mátti fólkið hafast við í flóttamannabúðum þar sem það lést umvörpum vegna slæms aðbúnaðar.
Friður komst loks á 21. júlí.