Kaflar
1978: Borgarastyrjöld í Íran

Allt frá árinu 1925 hafði Pahlavi-konungsættin ríkt í Íran eftir að hafa hrakið Qajar konungsættina frá völdum. Fyrsti konungurinn, Reza, ríkti til 1941 en var þá felldur af Bandamönnum í síðari heimsstyrjöldinni. Sonur hans Mohammad Reza Pahlavi tók við og ríkti til 1979.
Undir lok stjórnar Mohammed Reza Pahlavis hafði óánægja með stjórn hans aukist og hann var sakaður um að vera um of hallur undir vestræna menningu og ekki fylgja reglum islam, sem var ráðandi trú í landinu.
Það leiddi til þess að árið 1977 hófust mótmæli í landinu, en konungurinn mætti þeim af fullri hörku og lét skjóta á mótmælendur.
Þessi hörðu viðbrögð konungsins verkuðu sem olía á eldinn og árið 1978 ríkti borgarastyrjöld í landinu þar sem mótmælendur fylktu liði í nafni æðsta klerksins Ayatollah Khomeini sem rekinn hafði verið í útlegð árið 1963.
Í janúar 1979 flýði konungurinn og í febrúar sneri Khomeini til baka úr útlegð sinni. Það var svo 11. febrúar 1979 að ný klerkastjórn með æðstaklerkinn Ayatollah Khomeini í farabroddi tók völdin. Megináhersla nýrrar stjórnar byggðist á trúarlegum grunni og konur þurftu aftur að hylja líkama sinn. Var það mörgum þungbært.