Kaflar
1979: Pol Pot og Rauðu kmerarnir missa völdin í Kambódíu

Helsti ráðamaður í Kambódíu á árunum frá árinu 1954 fram til ársins 1970 var Sihanouk prins. Þá var gerð hallarbylting í Kambódíu þegar prinsinn var í opinberri heimsókn í Kína. Var þessi nýja stjórn studd dyggilega af Bandaríkjamönnum, en þeir áttu þá í stríði í nágrannaríkinu Víetnam.
Í kjölfarið má segja að borgarastyrjöld hafi ríkt í landinu þangað til kommúnistinn Pol Pot og Rauðu kmerarnir brutust til valda árið 1975. Rauðu kmerarnir voru kommúnísk skæruliðasamtök sem barist höfðu gegn frönsku nýlendustjórninni í Kambódíu.
Við tók sannkölluð ógnarstjórn. Íbúarnir voru látnir vinna sem þrælar, enginn mátti eiga neitt og öllum skólum var lokað. Tugir þúsunda voru drepnir. Þá var það árið 1979 að Víetnamar réðust inn í landið og frelsuðu þegnana og komu á nýrri stjórn.