Kaflar

1977: Apple býður upp á fyrstu einkatölvuna

Fyrsti vísir að tölvu sem vitað er um varð til í heimahúsi árið 1938 hjá Þjóðverjanum Konrad Zuse og var afar frumstæður eins og nærri má geta. Í Pennsylvaníuháskóla var tölva smíðuð árið 1946 og þótti þá afar fullkomin en hún var risastór og vinnslugeta hennar á við lítinn vasareikni.
Næstu áratugi kepptust fyrirtæki og háskólar við að þróa nýja tækni og gera tölvu sem byggi yfir aukinni færni.
Árið 1977 framleiddi fyrirtækið Apple fyrstu samsettu einkatölvuna fyrir almennan markað og hét hún Apple II. Fjórum árum síðar 1981 var svo komið að IBM.
Internetið var svo fundið upp árið 1969 af Varnarmálaráðuneytinu í Bandaríkjunum. Opinber fæðing internetsins er þó talin vera 1. janúar 1983.
Fyrsta heimasíðan leit dagsins ljós árið 1991. Það var tölvunarfræðingurinn Tim Berners-Lee sem bjó til fyrstu vefsíðuna í Evrópsku rannsóknarstöðinni í öreindafræði, CERN í Sviss.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvenær varð fyrsti vísirinn af tölvu til?

2. Hversu öflug var tölvan sem sköpuð var í Pennsylvaníuháskóla 1946?

3. Hverjir framleiddu fyrstu samsettu einkatölvuna fyrir almennan markað?

4. Hvenær var fyrsta samsetta einkatölvan framleidd?

5. Hvenær er opinber fæðing internetsins talin vera?

6. Hvenær varð fyrsta heimasíðan að veruleika?