Kaflar
1975-2008: Borgarastríð í Angóla

Landið Angóla í Suður-Afríku var nýlenda Portúgals frá 1575 og fram til 1975 þegar það öðlaðist sjálfstæði sem íbúarnir höfðu lengi barist fyrir.
En það voru ekki allir sammála um hvað ætti að taka við eftir að sjálfstæði var fengið. Það voru einkum þrír flokkar sem börðust um völdin í landinu og þegar einn af þeim hópum komst til valda braust út hatrömm borgarastyrjöld og voru flokkarnir studdir af utanaðkomandi ríkjum. Sovétríkin og Kúba studdu ríkjandi stjórnarflokk en Bandaríkin og Suður-Afríka studdu hina flokkana tvo.
Þrátt fyrir margar samningaumleitanir hélt stríðið áfram og lagði efnahag landsins í rúst og skapaði hörmungarástand fyrir íbúana.
Landið er auðugt að hráefnum, s.s. demöntum og olíu, og þá eru þar góð tækifæri í landbúnaði og fiskveiðum en stöðugt stríðsástand kom í veg fyrir nýtingu þessara auðlinda og allar framfarir.
Það var svo fyrst árið 2002 að samið var um vopnahlé og lýðræðislegar kosningar haldnar árið 2008. Enn ríkir mikill ójöfnuður í Angóla og þar er mikil fátækt.