Kaflar

1976: Mario Soares kosinn forsætisráðherra í Portúgal

Á 15. og 16. öld var Portúgal heimsveldi og átti nýlendur víða. Með tímanum  hallaði þó undan fæti og Portúgalar misstu margar af nýlendum sínum, t.d. Brasilíu (1809).
Var landið konungsveldi lengst af en árið 1910 gerðu íbúarnir uppreisn og stofnuðu lýðveldi. Entist það til 1926 þegar herforingjastjórn tók völdin.
Árið 1928 var maður að nafni Antonio de Oliveira Salazar gerður að fjármálaráðherra og nokkru síðar að forsætisráðherra, og 1933 var landið orðið einræðisríki.
Stærstur hluti almennings var áfram fastur í fátækt. Um miðja 20. öld fóru nýlendur eins og Angóla, Gínea-Bissá og Mósambik að reyna að losna undan valdi Portúgala sem brugðust hart við. Kostaði sú barátta Portúgala mikið og á endanum var gerð uppreisn heimafyrir árið 1974 sem kölluð hefur verið nelliku-uppreisnin þar sem íbúar þustu út á götur og færðu uppreisnarmönnum nellikur til að setja í hlaup rifflanna. Voru það tilmæli um að byltingin skyldi fara friðsamlega fram.
Í fyrstu frjálsu þingkosningunum eftir byltinguna unnu sósíalistar sigur og Mario Soares varð forætisráðherra 1976. Í kjölfar byltingarinnar urðu allar nýlendur Portúgala sjálfstæð ríki.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

Verkefni
1. Hverju státaði Portúgal af á 15. og 16. öld?

2. Hvað breyttist í Portúgal árið 1910?

3. Hverjir tóku völdin í Portúgal 1926?

4. Hvernig var ástatt um stjórn Portúgals árið 1933?

5. Hvenær var nelliku-uppreisnin?

6. Hver fór fyrir stjórn sósíalista eftir kosningarnar 1976?