Kaflar
1981: Aulabandalagið og Hús andanna

Það var á þessu ári sem sagan Aulabandalagið eða A Confederacy of Dunces eftir John Kennedy Toole kom út. Sagan gerist í New Orleans og vilja margir meina að engum hafi tekist að lýsa lífinu þar betur. Sagan sem var tilnefnd til margra verðlauna kom ekki út fyrr en ellefu árum eftir að höfundurinn tók eigið líf aðeins þrjátíu og eins árs vegna þess að enginn fékkst til að gefa hana út. Sagan sló strax í gegn og hlaut hin virtu Pulitzer verðlaun.
Sagan hefur verið þýdd á íslensku sem og önnur skáldsaga hans sem ber nafnið Neonbiblían.
Á þessu ári hóf Isabel Allende sem fæddist í Perú og er í dag með mest lesnu spænskumælandi rithöfundum í heiminum að skrifa bréf til afa síns sem þá lá banaleguna. Bréfið sem hún hóf að skrifa endaði svo sem fyrsta skáldsaga hennar, Hús andanna, en hún kom út ári síðar.
Isabel Allende hefur látið mikið að sér kveða í mannréttindamálum og hún kom á fót sérstakri stofnun árið 1996 sem hefur það að markmiði að vinna að bættum réttindum kvenna. Margar sögur hennar hafa verið þýddar á íslensku.